Friday, October 27, 2006

Sjóðheit

Ég er bara sjóðheit í blogginu þessa dagana. Ég var nú bara aðeins að laga linkana og ákvað að henda inn smá kveðju.
Annars er nú ekki mikið að frétta frekar en venjulega. Það er nú bara frekar rólegt föstudagskvöld hér á Skúlaskeiðinu. Leikur hjá okkur FH skvísum á morgun við HK í Kópavogi...svo verður djammað ;) Ég er reyndar að fara í þrítugsafmæli hjá henni Thelmu sem vinnur með mér annað kvöld, en það verður bara upphitun fyrir svakalegt FH sykurpúða partý.
Jæja...best að fara að henda í þvottavél svo ég eigi nú föt til þess að keppa í á morgun.
kveðja, Sigrún skvísa

1 comment:

Anonymous said...

Hæ sæta mín ég les alltaf síðuna þína þannig að ég er ekkert smá ánægð með þig þessa dagana:) Ótrúlega gaman að hitta þig þarna á leiknum þó að það hafi nú verið í styttri kantinum hehe. Vona að þú reynir nú að kíkja í heimsókn til mín sem fyrst:)
Miss you skvís