Tuesday, October 24, 2006

Hvað er að gerast hérna...!!

Góðan daginn gott fólk
Það er óhætt að segja að myndirnar mínar hafi fallið í misjafnan jarðveg...en það er bara ágætt, þið hugsið kannski betur um hvernig þið hegðið ykkur drukkin næst...!!
Annars er ekkert að frétta, mér finnst ég hafa bloggað síðast í gær tíminn líður svo hratt...ég ætla s.s. að reyna að valda Ásdísi ekki vonbrigðum og reyna að vera duglegri að blogga...hún er víst sú eina sem les!!
Annars nálgast helgin óðfluga (...samt er bara þriðjudagur núna!!), bikarleikur annað kvöld við Akureyri í Krikanum og svo útileikur við HK á laugardaginn. Þegar sá leikur er búinn erum við búnar að spila 5 leiki á tveimur vikum...sem er ágætis keyrsla.
Eftir leikinn á laugardaginn er svo loksins tækifæri til þess að djamma eitthvað og ætla að ég skella mér í þrítugsafmæli.
Jæja, ætla að fara að koma mér úr vinnunni...
sjáumst síðar, Sigrún

1 comment:

Anonymous said...

Sko þig! Núna er stefnan bara sett á allavega eitt blogg í viku ;o)