Monday, June 12, 2006

Nýjar myndir

Komiðið sæl gott fólk!

Þótt það sé langt síðan síðast þá er bara ótrúlega lítið að frétta hjá mér. Helsta ástæðan fyrir þessu bloggi mínu er sú að ég er búin að vera henda inn myndum og eru linkarnir hér til hliðar...förum nánar í það á eftir.

Ég er hins vegar að fara til KÖBEN á morgun. Veðrið í KÖBEN er búið að vera geggjað undanfarna viku og það á að vera geggjað allavegana fram á miðvikudag...vonandi eitthvað lengur. Ég verð fram á mánudag og ætla að reyna að nýta tímann vel. Annars vegar að heimsækja hana Hörpu mína og versla frá mér ráð og rænu og borða gott og drekka, og hins vegar að hitta Arnar Þór frænda minn, ef hann má eitthvað vera að því.

Fyrsti dagurinn minn í sumarfríinu mínu var í dag. Ég get ekki sagt að ég hafi nýtt hann sérstaklega vel. Er ennþá að jafna mig eftir partý sem ég hélt á laugardaginn. Þetta var án efa súrasta djamm sem ég hef farið á. Ég held að ég hafi aldrei drukkið eins mikið áfengi og á laugardaginn og aldrei tekið jafn mörg staup. Þetta byrjaði sem skemmtinefndardjamm og framan af vorum við bara þrjú, ég, Hafdís og Manni. Síðar bættist Ragnhildur við og svo Dröfn. Ég held að þetta hafi endað með að hátt í 30 manns hafi farið héðan í bæinn og ég veit ekki um helminginn af liðinu sem var hérna :/

Allavegana...myndirnar sem koma inn núna eru með link hér til hliðar. Þær eru merktar undir "NÝTT". Set kannski meira inn á morgun.

bleble...

1 comment:

Anonymous said...

:-D