Tuesday, July 11, 2006

Fleiri nýjar myndir

Hæbbs
Ég var að setja fleiri nýjar myndir inn, þær eru merktar NÝTT!!

Annars er bara mest lítið að frétta hjá mér...sumarfríið mitt búið :( Ég nýtti það nú samt vel, fór í geggjaða heimsókn til Hörpu í KÖBEN og hitti Arnar frænda. Svo skelltum við Gísli okkur til London í 5 daga sem var líka alveg geggjað. Ég er með myndir þaðan sem ég skelli inn við tækifæri.

HM búið...maður fylgdist náttúrlega með því. Komst eiginlega ekki hjá því. Það var veðbanki í vinnunni...ég lenti í öðru sæti á eftir Gunna Magg, hann rétt hafði þetta með einu stigi!! Ég fæ nokkrar flöskur í verðlaun sem koma að góðum notum ;)

Núna styttist líka í FH útileguna margfrægu. Eitt myndaalbúmið gefur nú góða mynd af því hvað við erum búin að leggja á okkur við að skipuleggja hana!! Við í skemmtinefndinni förum á föstudaginn til að koma öllu fyrir og gera allt tilbúið áður en allt fólkið kemur á laugardaginn. Það verður örugglega alveg geggjað...við erum búin að redda nánast öllu frítt fyrir mannskapinn, tjaldstæði, áfengi, mat og allt!!

En jæja...ætla að fara að leggjast uppí sófa og halda áfram að vera veik :)
kveðja, Sigrún veikaskvísa

No comments: