Tuesday, March 14, 2006

Nú skal bloggið tekið með trompi

Sælt veri fólkið!!
Ég ákvað það núna áðan eftir smá umhugsun að fara að herða mig í þessu bloggi...enda ekki vanþörf á þar sem seinasta blogg kom í september eða eitthvað!! Það var annað hvort að taka þetta með trompi eða hætta þessu alveg.

Góður tími að byrja að blogga aftur þegar manni dettur ekkert í hug...hhmmm

Annars er von á fullt af myndun inn á næstunni...það sem bíður er afmæli Önnu Rutar (sem var b.t.w. í ágúst!!), óvissuferðardjamm með FH skvísum, annað djamm með FH skvísum, árshátíð KB banka og örugglega eitthvað meira so stay tuned!!

Það er nóg að gera...skólinn á fullu, sem ég er ekki alveg í stuði fyrir þessa dagana, boltinn á fullu og vinna á fullu.

Jæja, hef þetta ekki lengra í bili...
þangað til næst...hvenær sem það svosem verður...
Skvísan

No comments: