Friday, March 17, 2006

Er veik, með mikið meik og allt í steik



Jamm, get ekki sagt að ég sé eitthvað ógó hress núna...er búin að vera heima veik í dag með kvef, hálsbólgu og hausverk. Er að fara til Vestmannaeyja í fyrramálið og get eiginlega ekki skrópað af því að Begga fer ekki með. Er búin að senda henni sms og spyrja af hverju??? En hún svarar mér ekki!! Beygla!!
Aðalfundur KB banka var núna áðan og voru bara góðar fréttir af honum...allir sáttir eftir því sem ég best veit.
Þarf að herða mig upp í að setja í vél svo dressið verði tilbúið fyrir morgundaginn en ég bara hreinlega nenni því ekki...ég er veik, for kræing át lát.
Var búin að lofa því að fara á bíl á morgun...fljúgum frá Bakka. Það er eins gott að það verði ekki hálka því að bíllinn minn er á sumardekkjum...og verður það áfram. Ég hafði nefninlega aðeins eitt mottó fyrir veturinn, og það var að láta bílinn ekki á vetrardekk.
Kannski ég láti eina mynd fylgja með svona í lokin...meira fyrir sjálfa mig, til að sýna að ég geti litið vel út þrátt fyrir erfiða tíma eins og núna.
En jæja...þangað til næst...veika skvísan

1 comment:

Anonymous said...

finally fór daman að blogga aftur;)
KV frá Boggu í baunalandi:)