Friday, March 31, 2006

Helgin nálgast...

Góðan og blessaðan daginn!!

Loksins kominn föstudagur :) Ég er ekki búin að vera eins virk í blogginu og ég hafði vonað...en ég reyni.

Hún Jóna sæta mín var kosin ungfrú Reykjavík í gærkvöldi. Innilega til hamingju með það elsku Jóna mín.
Þetta var ekkert smá flott hjá henni, var náttúrlega lang sætust og svo var hún líka kosin Aqualina stúlkan. Ég er svo stolt af henni...réði ekkert við tárin fyrir framan sjónvarpið í gær :)

Síðan er seinasti handboltaleikurinn á þessu tímabili hjá okkur FH skvísum á morgun. Það er nú eins gott að vinna hann og aðeins að reyna að bjarga andlitinu eftir vægast sagt hörmulega seinustu leiki!

Annars ætla ég nú bara að reyna að slaka á um helgina...kannski að fara að kaupa sjónvarpsskáp ef ég nenni. Ég er búin að vera svo ógeðslega þreytt og löt þessa vikuna að það eru varla til orð til þess að lýsa því. Stefni á að vera allavegana helmingi hressari í næstu viku...sjáum hvernig það gengur.

Ætla að láta þetta duga í bili
Góða helgi, strumparnir mínir :)
kveðja, Sigrún

1 comment:

Anonymous said...

Búin að kaupa...vaknaði extra snemma í gærmorgun til þess að fara að kaupa hann.