Saturday, March 18, 2006

Frábær dagur, maður!


Ég átti frábæran dag í dag!!
Vaknaði kl. 9 og fór í sturtu og gerði mig reddí fyrir leik gegn ÍBV í Eyjum. Lögðum af stað frá Krikanum kl. 10.15. Vorum komnar á Bakki Airport kl. 11.45. Þar áttum við FH skvísur frábæran tíma saman...við spiluðum, fórum í kvikmyndaleik og borðuðum nesti saman. Kl. 14.30 var lagt af stað aftur í bæinn og var ég komin í Hafnarfjörður City kl. 16.00
Ekki nóg með að þetta hafi verið alveg frábær dagur...heldur fæ ég tækifæri til að endurtaka þetta allt saman á morgun. Reyndar verður ekki lagt af stað á Bakka nema það sé 100% öruggt með flug...en eins og þið sjáið er eintóm hamingja á þessum bænum :)
Ég ákvað svo að láta þessa mynd, sem var tekin á djamminu hjá okkur FH skvísum fyrr í vetur, fylgja með...mér fannst hún svo lýsandi fyrir daginn.

1 comment:

Anonymous said...

hæhæ
á ekkert að fara að setja inn myndirnar ??? ;)