Thursday, November 10, 2005

Halló Halló

Jæja...er ekki kominn tími á smá blogg?!? Annars hef ég nú svosem alveg reynt að blogga geðveikt mikið tvisvar, en það datt út og ég varð pirruð og nennti ekki að skrifa meira. Þess vegna er ég að skrifa þennan pistil í word núna.
Annars er nú bara mest lítið að frétta. Brjálað að gera...heppilegt að það er komin tveggja mánaða pása frá deildinni núna, þótt það sé soldið leiðinlegt. Ég fæ þá kannski smá meiri tíma fyrir skólann.
Fór í sólahringspróf í stjórnun yfir afmælishelgina mína, 15.-16. október og það gekk bara vel. Er ekki búin að fá einkunn fyrir það. Svo fór ég í próf í arðsemisgreiningu föstudaginn 21. október og það gekk ekki eins vel. Kennararnir mega nú bara skammast sín fyrir að koma með svona svínslegt og andstyggilegt próf. Ég held að enginn hafi náð að klára prófið og svo kom efni á prófinu sem var ekki einu sinni búið að kenna. Ég vissi svosem fyrirfram að ég myndi falla í þessu þar sem að ég náði bara að klára rúmlega 50% af prófinu, þannig að ég þyfti að hafa u.þ.b. allt rétt til þess að ná en prófeinkunn mín var 4. Kannski ekkert til þess að tala um en ég er bara þokkalega sátt að ná 4 af 5 mögulegum (hjá mér allavegana!!).

Jæja...nenni ekki meira í bili...þangað til næst (hvenær sem það nú verður)
Kveðja, Sigrún skvísa

No comments: