Thursday, August 10, 2006

Ótrúlegt en satt ;)



Já gott fólk!! Nú erum við að skoða myndir sem flestir ættu að kannast við...allavegana þessa sem er lengra til vinstri. Þar horfum við á fjóra karaktera úr unglingasápunni geysivinsælu Beverly Hills 90210. Í efri röð til vinstri er aðalpersóna þáttarins, Brandon Walsh, sem leikinn er af Jason Priestley. Til samanburðar á hinni myndinni er sami leikari í dag, og leikur hann einmitt í þáttaröðinni Love Monkey sem er sýnd á Skjá einum á þriðjudögum kl. 22.30. Það eru ágætis þættir...en sýna ótrúlega vel hvað þessi annars geðþekki leikari hefur elst ekki svo vel... :/


Annað var það ekki...Gilsdóttir át.

No comments: